Birna Pálsdóttir

Ég er s.s. hætt að blogga hér. Ég bara... nenni ekki að eyða hverri færslu út one by one.. Ætla að leita mér hjálpar í því að eyða blogginu bara. thanx.bye.

Ég er bjáni..Birna Pálsdóttir

Á svona mómentum er maður svo þakklátur fyrir að fá að vera hjá fjölskyldu og vinum. Góði guð þakka þér fyrir. Þakka þér fyrir!!

Það er að birta til :)Birna Pálsdóttir

Jæja.. halló halló. Ekki að ástæðulausu sem ég heiti Birna. Ég legst í dvala eða öllu heldur skammdegisruglið og læt ekki í mér heyra í marga daga. Þeir dagar eru hreint ekki þeir bestu en ég get skammast og vælt út í skammdegið í mörg ár. Mamma dreif mig í líkamsrækt og það hjálpar mér geðveikt mikið. Er reyndar bara að byrja núna en þetta er allt að koma. Ég er staðráðin í að byrja ða mæta á mömmumorgna núna þar sem ég missti af skyndihjálparnámskeiði í morgun *bömmer!*.. ég ætla ekki að missa af ungbarnanuddinu í næstu viku... c'est la vie. Ég er öll að hressast s.s. og held að jólaljósin séu að hjálpa til líka. Elínbet Líf fór til barnalæknis í dag. Það var smá bið hjá lækninum og Elínbet ákvað að taka það út á mömmu sinni:) Elsku stelpan.. Hún byrjaði á því að pissa (alveg rennbleyta btw) pilsið mitt.. Ég bara "æj elskan..Við skiptum bara um" og svo fór ég að skipti á henni. Ég ennþá öll útí pissi því ekki tók ég auka föt á mig:) hehe... svo sitjum við rólegar.. og neinei... kúkar ekki mín... niðurgangur takk fyrir pent.. ég bara ! Elínbet! hehe.. Þegar e´g var nýbúin að skipta um allt aftur þá kúkar hún aftur. Mamman gafst upp og setti hana í bleyju:) hehe.. En þegar við loksins komumst til læknisins fékk ég það á hreint að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af þessu kvefi. Það sér ekkert á lungum og nefi og þetta er bara eitthvað sem hún vex upp úr. Hann var voðalega ánægður með hana, hún brosti framan í hann og allt. Reyndar grenjaði hún líka en það er önnur saga:) hahah.. Ég missti af skyndihjálparnámskeiði í morgun.. shame on my selfishness! Það er endalaust hægt að velta sér upp úr þunglyndissjálfsvorkun en ekki meir. Ég ætla í ungbarnanudd í næstu viku. Elínbet Líf hló í morgun. Ég hef aldrei heyrt hana hlægja áður. Hláturinn hennar var svo innilegur að ég hló að henni í svona tuttugu mínútur á eftir. Yndislegust dóttir mín.. ji minn. Þetta verður klárlega í uppáhaldi hjá mér.. amk alveg þangað til hún segir mamma:) Svo er hún líka farin að grípa í leikföngin sín og hjala látlaust..  ekkert smá dugleg. Hún er án efa á sama róli og jafnaldrar hennar en mér finnst hún algjört kraftaverk !

Loksins nýjar fréttir:)Birna Pálsdóttir

Já... Loksins fréttir. Ég næ varla að fylgjast með tímanum né elsku litlu stelpunni minni. Hún er orðin svo stór.. farin að grípa í leikföng og ég veit ekki hvað og hvað:) Ég bíð bara eftir því að hún byrji að lesa.. hehe.. :) En hún er að fara til barnalæknis á morgun. Ég er byrjuð í líkamsrækt.. hófst officially í dag. Líður nokkuð vel með það, geðveikt gott að komast í tilbreytingu. I like it. Jæja.. hef ekki tíma í meira.. bara aðeins að láta vita af mér. Ég er buin að breyta barnalandssíðunni: http://www.elinbetlif.barnaland.is búin að læsa síðunni en lykilorðið er einfalt:) nafnið á mömmu.

Það væri gaman að fá comment þó ég eigi það líklega ekki skilið fyrir lélega blogghæfileika:) ciao bello

Birna Pálsdóttir

Ég verð eiginlega að segja að síðustu dagar hafi verið ánægjulegir. Tvö ný frændsystkini eru að bætast í hópinn í maí 2008 sem þýðir að Elínbet Líf fær ekki lengi að vera yngst:) Mamma og pabbi eiga von á barnabörnum númer 9 og 10! jii..:) Ég gæti ekki verið mikið sáttari með þessar fréttir, finnst þetta svo æðislegt:) Skírnin fór ljómandi vel fram og mér fannst þetta æðislegt. Skírnin sjálf svo persónuleg og fjölskyldvæn, akkúrat eins og ég vildi hafa hana....og veislan innihélt veitingar af bestu gerð og mikið af vel gerðu fólki samankomið:) Perfecto!

Ég fór til tannsa í dag. Ég held ég sé hreinlega búin að sættast við tannlækna í bili. Ég var búin að forðast það svo lengi að fara en svo er ég svo glöð núna að hafa farið því hann lagaði tönnina mína og það var ekki einusinni vont:):):) geggjað...!!:) Ég er svo ánægð.

Um helgina ætlum við Tóta systir að gera eitthvað saman stelpurnar.. spila og baka pizzu eða eitthvað með börnin okkar. Ég er strax farin að hlakka til:)

Skrifa meira seinna:)

Allt klappað og klárt..Birna Pálsdóttir

Jæja.. þá er allt klappað og klárt fyrir veisluna.. eða svona næstum. Margir góðir búnir að fá hin ýmsu verkefni og allt bara að verða nokkuð ready. Er búin að ákveða að halda veisluna bara í skíðaskálanum, það er einfaldast. Þó svo að ég hafi verið búin að auglýsa annan stað í kortinu.. Aji.. ég læt það bara berast í veislunni:) híhí.. Óskipulag að gera útaf við mig hérna... Ég er eiginlega að bíða eftir að mamma koma heim úr vinnunni kl. 12 svo ég geti sagt henni fréttirnar.. Hún verður vafalaust fegin að ég sé loksins búin að ákveða mig:) Ákvörðunarkvíðinn að fara með mann.. Við vorum boðnar í mat mæðgur og afinn til Öddu og Begga áðan. Við gátum ekki stoppað nema rétt til að borða því þegar ég var að borða eftirréttinn kúkaði Elínbet svoleiðis upp á bak að ég þurfti að fara með hana heim og láta hana í smá bað. Það var nú allt í besta við kláruðum þetta stelpunar. Svo fékk hún snafs og núna er hún sofandi. Yndisleg:) Hún sofnaði eitthvað um 8 eða 9 leytið, náði ekki alveg tímanum en það þýðir ö-a að ég þarf að vakna aðeins oftar í nótt sem er aok! Mér er alveg sama svosem. En svona er lífið, Röggi er væntanlegur eftir 5 daga. Spennan magnast. 2 vikur hafa aldrei verið svona lengi að líða éggetsvosvariðþað! ég er að setja inn myndir á barnaland.. voða er þetta alltaf lengi. SVo er ég búin að vera að taka brosmyndamaraþon.. reyna að ná brosmyndum af henni. Það er að takast illa því hún er svo forvitin að horfa á myndavélina. Svo brosir hún eins og sólin um leið og ég legg vélina frá mér:) prakkari. Hér er þó ein sem lukkaðist ágætlega.. samt ekki:)



Ég sá þetta á flickr. Vakti áhuga minn þar sem líður að skírn. Ég trúi á guð. Mér finnst það gott og jafnvel þægilegt. Eitt sinn hélt ég því alltaf fram að ég trúði bara á visindin..en ég held það hafi bara verið gelgjan.  Ég trúi ekki á himnaríki, en ég trúi á örlögin og guð.

Gleðifréttir...æsifréttir..Birna Pálsdóttir

Mikiði er ég búin að hafa það gott síðan ég bloggaði seinast... Það sem stendur klárlega upp úr er baðið sem ég fór í í gærkvöldi!! Ég hef ekki farið í bað (samt sturtu) síðan þegar eg var með hríðarverki. Það eru 42 dagar síðan:) Díí hvað það var gott að liggja bara í freyðibaði og hlusta á útvarpið. Vantaði bara kertin sem ég nennti ekki að kveikja á:) hehe.. Ég vaknaði eldhress í morgun líkt og ég hefði vaknað upp sem ný manneskja. Ég tók til í fötunum hennar Elínbetar og athugaði hverja flík til þess að athuga hvað væri orðið of lítið og fór svo í kassana með stærri fötum og athugaði hvort hún gæti notað eitthvað af því. Hafði 2 buxur upp úr krafsinu og svolitla tiltekt. Fór svo í gegnum körfurnar í herberginu (sem eru uppí hillu). Þar geymi ég allskonar drasl en nú er þar bara nauðsynlegt drasl:) jahá.. Eldress stelpa:) Endaði á því að skúra öll svefnherbergin í húsinu og ganginn og fór svo út þegar mamma kom heim og mokaði tröppurnar. Treysti mér ekki út með Elínbetu i dag og uppskar með því að hún verður óróleg í kvöld.. Ég verð að fara út með hana á morgun ef það verður skárra veður. Það er bara búið að vera svo vont síðustu 2 daga að ég hef ekki þorað með hana út. Þetta voru æsifréttir. Gleðifréttirnar eru þær að Rögnvaldur eru búinn að fá vinnu á Ísafirði og á ég vinnuveitandanum geðheilsuna að þakka. þúsund þakkir kæri maður - I owe you one!!!

Eitthvað sem allir ættu að tileinka sérBirna Pálsdóttir




Lífið í nýju ljósi...Birna Pálsdóttir

Enginn getur með nokkru móti vitað hvað lífið merkir, hvað heimurinn merkir, hvað nokkuð merkir, fyrr en hann hefur eignast barn og unnað því. Og þá breytist gjörvallur heimurinn og ekkert verður nokkru sinni eins og áður.
Laficadio Hearn (1850 - 1904)

Ég get ekki annað en verið þessu einstaklega sammála. Ég er svo heppin að eiga stóra fjölskyldu sem ég elska af öllu hjarta og hún mig. Þarna ríkir svo mikill kærleikur að af nógu er að taka og hvergi er betri staður á jörðu en einmitt í þeirra faðmi. Það fannst ég sem best í dag þegar ég kom heim niðurbrotin vegna þess að ég þurfti að kveðja Rögnvald á Reykjavíkurflugvelli þegar ég hélt heim á leið. Þegar ég horfði á hann kveðja dóttur sína á vellinum þá fékk ég einn þann stærsta kökk í hálsinn sem ég hef fengið á ævinni. Sú litla vissi auðvitað ekkert hvað á sig stóð veðrið þegar foreldrar hennar stóðu yfir henni með tárin í augunum. Lífið er ekki alltaf einfalt og einmitt núna finnst mér ég vera að rifna í tvennt. Mig langaði allra helst að vera lengur í Reykjavík og grét ófáum tárunum á leiðinni heim í vélinni. Stelpan sem sat á móti mér hinumegin við ganginn hélt sennilega að ég væri með þeim flughræddari því maskarinn lak út um allt og varð að ógurlegri stríðsmálningu. En mér var alveg sama vegna þess að hjartað sveið undan sársaukanum við að kveðja. Aldrei hefur mér þótt svona sárt að kveðja borg mengunar og endalausra umferðaljósa. Enda var það ekki hana sem ég var að kveðja, heldur hann. Þegar ég steig út úr vélinni, grátbólgin eftir ferðalagið kom mamma hlaupandi á móti mér og ég var við það að bresta í grát í annað sinn. Ég hef aldrei á ævinni verið eins fegin að sjá neinn eins og hana þarna. Hún hjálpaði mér með Elínbetu litlu og innan við glerið sá ég svo glitta í Þórunni systir og Helga Rafn. Yndislegt. Litli yndislegi frændi minn tók á móti mér og þó ekki mér einni með því að kalla á Elínbetu í þeim skilningi að hann væri feginn að fá hana heim á ný. "Ebeta!" Það var sannarlega eins og að lenda á skýi því ég bjóst ekki við svona mjúkri lendingu heima fyrir. Rögnvaldur þarf að vinna í Reykjavík vegna þess að hér er enga almennilega vinnu að fá. Í Reykjavík er nóga vinnu að fá og því eðilegast ef við mæðgur dveldum þar. Aftur á móti erum við búin að koma okkur fyrir hér. Hér þykir okkur best að vera og finnst mér við ekki geta búið okkur heimili í Reykjavík að sinni. Samt ætla ég nú að fara sem fyrst aftur, hugsanlega eftir tvær vikur til þess að hitta Rögnvald. Elínbet stækkar svo hratt að það nær ekki nokkurri átt að hann sjái hana ekkert. Svo líður að skírn. Ætli það sé ekki best að ákveða dagsetningu sem fyrst. Við höfum nú þegar ákveðið allt annað. Mér líður eins og ég hafi hlaupið maraþon ég er svo þreytt eftir andlegt ástand á heimilinu í dag. Sakna Rögnvalds endalaust mikið og eins og ég sagði þá líður mér eins og ég sé hreinlega að rifna í tvennt. Verst er að Elínbet veit ekkert hvað gengur á. Hún er svo lítil og saklaus vera. Yndislegust:* Ég fór að hugsa í dag hver fjölskyldan mín væri í raun núna. Ég hef alltaf litið á mig sem hluta af fjölskyldunni minni og Rögnvaldur væri hluti af henni hér með. Eftir að Elínbet fæddist buðum við hana að sjálfsögðu velkomna líka en ég hafði aldrei hugsað þetta eins og ég hugsaði í dag. Nú erum við 3 lítil fjölskylda. Ég hlakka til þess að fá að geta látið á það reyna að vera saman "fjölskyldan". En ég er alveg búin á því. Þurfti bara að koma þessu frá mér. Góða nótt.

Birna Pálsdóttir

Reykjavík er í sjálfu sér ágæt.
Hlakka samt ekki til að flytja hingað aftur.
Hlakka til að fara heim til mömmu í næstu viku í spjall og rólegheit.
Heimsóknin til Gunnu frænku áðan reddaði mér alveg. Færði mig aðeins nær heimahögunum.
Góða nótt, hef ekki þrek í meira.

Aðalvalmynd

Auglýsing